Kjóstu!Hvatningarhópur frambjóðenda til StjórnlagaþingsDreifa Hver erum við? Talsmaðurinn |
||
Hvers vegna á ég að kjósa?
Hvernig virkar kosningakerfið?
Hér fyrir neðan er nákvæmari útskýring, smelltu á fyrirsagnirnar til að sjá meira. Einn kjörseðill, allt að 25 frambjóðendurHver kjósandi hefur aðeins eitt atkvæði, ekki 25. Hver kjósandi velur og raðar allt að 25 frambjóðendur á einn og sama kjörseðilinn. Röðin skiptir máli. Sá efsti hefur forgang á atkvæðiðSá frambjóðandi sem kjósandinn raðar efst fær fyrst að nýta sér atkvæðið. Ef hann kemst inn, en ekki nema rétt svo, er atkvæðið fullnýtt. Hinir sem eru neðar á kjörseðlinum hafa þá ekkert gagn af atkvæðinu.
Atkvæði færist niður ef fyrsti er öruggurKomist sá efsti inn á ríflegu fylgi færist atkvæði hans til þess sem næst er raðað. Hann getur þá hugsanlega náð kjöri á því.
Atkvæði færist niður ef fyrsti kemst ekki innEf sá sem efst er raðað nær á hinn bóginn ekki kjöri sakir lítils fylgis færist allt atkvæðið til þess sem er valinn að öðru vali. Atkvæðið mun því gagnast að fullu til að koma manni á þingið ef nógu mörgum er raðað.
Atkvæðið finnur sinn frambjóðandaÞetta heldur svo áfram koll af kolli niður eftir kjörseðlinum. Sé kjósandinn svo óheppinn að enginn af þeim sem hann raðar á seðilinn nái kjöri fellur atkvæðið dautt niður.
Raðaðu því eins mörgum og þú treystir þér til!Til að atkvæðið þitt komi einhverjum góðum frambjóðanda að gagni þá áttu að raða sem flestum. Atkvæðið er fullgilt hvort sem þú raðar einum í efstu línu, eða 25 eða allt þar á milli.
Það er erfitt að ógilda atkvæðiðEkki hræðast að atkvæðið verði ógilt. Það gerist sjaldan því atkvæðið er fullgilt hvort sem aðeins er raðað einum í efstu vallínu, eða 25 eða þar á milli.
|
Hvernig kýs ég?
Er ekki lítill áhugi og stemmning fyrir stjórnlagaþinginu og kosningunum?Tvær meginástæður
Kosningar til stjórnlagaþings eru ekki eins áberandi í umræðunni og venjulegar kosningar af því að fjöldi frambjóðenda gerir fjölmiðlum erfitt fyrir og í venjulegum kosningum nota flokkarnir ríkisstyrki sína til að auglýsa grimmt.
Fjöldi frambjóðenda
Þeir eru of margir til að komast á hefðbundinn hátt í miðlana, það má ekki taka mismuna þeim og því kemst ENGINN þeirra í þessa miðla sem eru alltaf í augum og eyrum okkar. Öfugt við vanalega.
Styrkir til stjórnmálaflokka kosta auglýsingar
Sjórnmálaflokkarnir fá árlega hundruðir milljóna í styrki frá ríki og fyrirtækjum. Peningar sem að stórum hluta fara í að auglýsa í öllum miðlum, senda markpóst, halda fundi og hengja upp veggspjöld.
500 milljónir kaupa mikla athygli
Fyrir stjórnlagaþing, er sárafáum krónum eytt í áróður og stemmningsmyndun og auglýsingar dynja ekki á okkur daglega úr öllum áttum. Þess vegna finnst okkur að aðrir hafi ekki eins mikinn áhuga áþessu og við sjálf.
Hefur lýðræðið verðmiða?Þarf fimm hundruð milljónir til þess að draga okkur á kjörstað? Til þess að við sýnum áhuga á grunnþáttum lýðræðisins?
Notum tækifærið!Eigum við sem kjósendur að láta það spyrjast um okkur að við tuðum bara úti í horni og látum þetta tækifæri ganga okkur úr greipum? Það má ekki gerast!
|
Hvers vegna stjórnlagaþing?
Fúli kallinn hefur fjölgað sér!Þrír nýir en jafn sorglegir skoðanabræður. Endilega dreifa sem víðast! Hjálparvefir
|
| Hópurinn hefur eitt markmið: Að fá sem flesta til að kjósa sem flesta í kosningum til Stjórnlagaþings | ||
Kjóstu! - Hvatningarhópur frambjóðenda til Stjórnlagaþings.
Stjórnarskráin er grunnlög íslenska lýðveldisins, undirstaða alls þjóðskipulagsins. Nú er verið að velja fólk til að endurskoða hana. Mikilvægari verða ekki kosningar.
Hvatningarhópurinn er óformleg samtök hóps frambjóðenda til stjórnlagaþings sem vill hvetja fólk til þess að kjósa á laugardaginn. Þau hafa ráðið sér talsmann til að koma fram í fjölmiðlum og tala fyrir þeirri hvatningu. Laun talsmanns eru greidd með frjálsum framlögum þeirra frambjóðenda sem vilja efla kjörsókn á laugardag á þennan hátt.
Talsmaður hvatningarhópsins kemur fram fyrir hönd hvatningarhóps frambjóðenda en er sjálfur ekki í framboði. Hann er hvorki talsmaður einstakra frambjóðenda né heildarinnar. Hann flytur þau einföldu skilaboð frá hópnum að það sé mjög mikilvægt að við tökum öll þátt í kosningum til stjórnlagaþings og mætum á kjörstað. Kjósum á laugardaginn!
Talsmaðurinn talar ekki fyrir einstaka frambjóðendur. Hann talar ekki fyrir ALLA frambjóðendur eða frambjóðendur sem heild. Hann gæti látið einhver orð falla í beinni útsendingu, svona í hita leiksins, sem eru hans persónulegu skoðanir, og biðst bara fyrirfram forláts á því.
Talsmaður hópsins er Fjalar Sigurðarson